Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 26. september 2019 14:00
Magnús Már Einarsson
Hvað gerir David Silva næta sumar?
Mynd: Getty Images
Hinn 33 ára gamli David Silva mun yfirgefa herbúðir Manchester City þegar samningur hans við félagið rennur út næsta sumar. Silva hefur þá verið í tíu ár hjá Manchester City og unnið fjölda titla með liðinu.

Goal.com segir frá því í dag að umboðsmenn Silva séu farnir að fá mörg tilboð inn á borð til sín.

Inter Miami, nýtt félag David Beckham í Bandaríkjunum, vill fá Silva í sínar raðir sem og félög í Japan og Katar.

Silva hefur sjálfur lýst yfir áhuga á að spila með sínu heimafélagi Las Palmas áður en ferlinum lýkur en Las Palmas er í dag í basli í spænsku B-deildinni.

Ljóst er að hart verður barist um þjónustu Silva og spennandi verður að sjá hvar hann endar.
Athugasemdir
banner