Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 26. september 2019 23:38
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Leikmaður Derby í annarlegu ástandi áður en hann klessti á ljósastaur
Mason Bennett í leik með Derby
Mason Bennett í leik með Derby
Mynd: Getty Images
Mason Bennett, leikmaður Derby County á Englandi, gæti átt yfir höfði sér háa sekt og ekki ólíklegt að hann verði leystur undan samningi eftir að hann klessti bifreið undir áhrif áfengis á þriðjudagskvöld.

Bennett, sem er 23 ára gamall, kíkti með liðsfélögum sínum á næturlífið á þriðjudaginn en hann ákvað að keyra bifreið sína heim sem endaði með þeim afleiðingum að Richard Keogh, fyrirliði Derby, meiddist og verður hann frá út tímabilið.

Tom Lawrence var einnig með þeim í bílnum en nú er myndband komið í dreifingu sem sýnir Bennett vera ælandi á baðherbergi og ljóst að hann hafði drukkið mikið og var í annarlegu ástandi.

Bíllinn hafnaði á ljósastaur og hafa þeir Lawrence og Bennett verið ákærðir fyrir ölvunarakstur en ljóst er að Derby gæti refsað þeim enn frekar en hægt er að sjá myndbandið hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner