Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 26. september 2019 20:52
Brynjar Ingi Erluson
Ronaldo nálægt því að bæta óeftirsóknanvert met
Cristiano Ronaldo er ekki búinn að skora úr aukaspyrnu fyrir Juventus
Cristiano Ronaldo er ekki búinn að skora úr aukaspyrnu fyrir Juventus
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo, leikmaður Juventus á Ítalíu, hefur ekki enn tekist að skora fyrir félagið þrátt fyrir að hafa fengið átján tilraunir í ítölsku deildinni.

Ronaldo gekk til liðs við Juventus síðasta sumar og hefur skorað 30 mörk í 48 leikjum.

Hann hefur þó aldrei skorað úr aukaspyrnu fyrir Juventus en hann hefur fengið átján tilraunir til þess.

Aðeins einn leikmaður er með verri tölfræði en Camilo Ciano skoraði í 22. tilraun sinni með Frosinone á síðustu leiktíð.

Miralem Pjanic, miðjumaður Juventus, hefur fengið sex tilraunir á þessu tímabili og skorað einu sinni.
Athugasemdir
banner