Norski miðjumaðurinn Martin Ödegaard er farinn að sýna sparihliðarnar í spænsku deildinni í ár en hann átti frábæra stoðsendingu í 3-0 sigri Real Sociedad á Deportivo Alaves í kvöld.
Ödegaard, sem er 20 ára gamall, var keyptur til Real Madrid frá Stromsgodset árið 2015 en hann þótt þá einn efnilegasti leikmaður heims.
Hann spilaði með unglinga- og varaliði Real Madrid til að byrja með en hann hefur þó aðeins spilað tvo leiki með aðalliðinu og verið lánaður síðustu þrjú tímabil.
Ödegaard var frábær með Vitesse á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði 11 mörk í 39 leikjum en hann er búinn að skora 2 mörk og leggja upp eitt mark í sex leikjum fyrir Sociedad á þessari leiktíð.
Hægt er að sjá stoðsendingu hans gegn Alaves í kvöld hér fyrir neðan en hann átti þá hnitmiðaða sendingu á Mikel Oyarzabal sem skoraði.
Ødegaard with the best assist you will see this week! 🇳🇴🔥 pic.twitter.com/xw5E2XKs8q
— SirNeomelo🇳🇴 (@OleMoen2) September 26, 2019
Athugasemdir