Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 26. september 2019 21:13
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Oyarzabal skoraði tvö í þægilegum sigri Sociedad
Mikel Oyarzabal skoraði tvö fyrir Sociedad
Mikel Oyarzabal skoraði tvö fyrir Sociedad
Mynd: Getty Images
Real Sociedad 3 - 0 Alaves
1-0 Mikel Oyarzabal ('19 )
2-0 Willian Jose ('32 )
3-0 Mikel Oyarzabal ('41 , víti)
3-0 Cristian Portu ('87 , Misnotað víti)
Rautt spjald: Manu Garcia ('85, Alaves )

Real Sociedad vann Deportivo Alaves 3-0 í lokaleik kvöldsins í spænsku deildinni.

Mike Oyarzabal kom heimamönnum yfir á 19. mínútu áður en brasilíski framherjinn Willian Jose bætti við öðru á 32. mínútu.

Oyarzabal gerði þriðja mark Sociedad undir lok fyrri hálfleiks úr vítaspyrnu. Manu Garcia var rekinn af velli á 85. mínútu fyrir að fá sitt annað gula spjald og fékk Sociedad vítaspyrnu. Oyarzabal var farinn af velli og fór því Cristian Portu á punktinn en brást bogalistin.

Lokatölur 3-0 og Sociedad í 2. sæti með 13 stig á mean Alaves er í 17. sæti með 5 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner