Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 26. september 2019 23:02
Brynjar Ingi Erluson
Þjálfari Dortmund: Þið megið skrifa það sem þið viljið
Mynd: Getty Images
Það stendur ekki til að breyta um fyrirliða hjá Borussia Dortmund segir Michael Zorc, aðstoðarþjálfari liðsins, en Marco Reus hefur verið harðlega gagnrýndur í þýskum fjölmiðlum.

Dortmund gerði 2-2 jafntefli við Eintracht Frankfurt síðustu helgi en Reus lét fréttamann Sky heyra það er hann var spurður út í hugarfar leikmanna.

Reus er fyrirliði Dortmund og verður það áfram, sama hvað fjölmiðlar skrifa um málið.

„Okkur líður vel með hann sem fyrirliða og svo erum við með Lukasz Piszczek og Axel Witsel sem hafa mikla reynslu og svo auðvitað Mats Hummels,” sagði Zorc.

„Þetta eru allt leiðtogar og við höfum enga ástæðu til að breyta. Þið megið skrifa það sem þið viljið,”
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner