Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 26. september 2019 19:30
Brynjar Ingi Erluson
Zlatan skaut LA Galaxy í umspil - 28 mörk í 27 leikjum
Zlatan Ibrahimovic hefur verið ótrúlegur með LA Galaxy
Zlatan Ibrahimovic hefur verið ótrúlegur með LA Galaxy
Mynd: Getty Images
Sænski framherjinn Zlatan Ibrahimovic skoraði og lagði upp mark í 2-1 sigri Los Angeles Galaxy á Real Salt Lake City í MLS-deildinni í nótt en Galaxy tryggði þátttökurétt sinn í umspilinu.

Zlatan er 37 ára gamall en virðist þó ferskari en nokkru sinn fyrr en hann hefur skorað 28 mörk í 27 leikjum í MLS-deildinni á tímabilinu og þá lagt upp sex.

Það er aðeins einn maður sem slær honum við og er það mexíkóski sóknarmaðurinn Carlos Vela sem hefur skorað 30 mörk í 29 leikjum en hann leikur fyrir nágranna Galaxy, Los Angeles FC.

Galaxy tryggði sig í umspilið með sigrinum í gær, sem er mikill léttir enda komst félagið ekki í umspilið á síðasta tímabili. Zlatan og félagar virðast í góðum gír.


Athugasemdir
banner
banner
banner