Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 26. september 2022 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Newcastle ekki gefist upp á Maddison
James Maddison
James Maddison
Mynd: EPA
Newcastle United mun reyna aftur við James Maddison, leikmann Leicester City, þegar glugginn opnar aftur í janúar, en það er Footballer Inside sem hefur heimildir fyrir þessu.

Leicester hafnaði 50 milljón punda tilboði Newcastle í Maddison í sumar.

Félagið gafst upp á að reyna sannfæra Leicester um að lækka verðmiðann og fór það svo að hann var áfram hjá félaginu.

Leicester vill fá 60 milljónir punda og mun Newcastle reyna að fá hann aftur í janúarglugganum.

Maddison hefur skorað 3 mörk og lagt upp 1 í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili og hefur einn af fáum ljósum punktum í liði Leicester, sem er í neðsta sæti deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner