Fotbolti.net
26.10.20 - 13:39
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Donnarumma og Hauge með Covid

Jens Petter Hauge.

Jens Petter Hauge.

Canon

Mynd: Getty Images

AC Milan tilkynnti í dag að tveir leikmenn liðsins hefðu greinst með Covid-19, markvörðurinn Gianluigi Donnarumma og norski vængmaðurinn Jens Petter Hauge.

Donnarumma og Hauge eru nú í einangrun á heimilum sínum en samkvæmt tilkynningu AC Milan hafa þeir ekki einkenni.

Í kjölfarið á því að þeir greindust með veiruna fór allur leikmannahópurinn aftur í skimun en öll sýnin reyndust neikvæð.
Milan mætir Roma í ítölsku A-deildinni í kvöld en þarf að spila án ítalska landsliðsmarkvarðarins Donnarumma og Hauge.

Hauge skoraði eitt af mörkum Milan í 3-1 sigri gegn Celtic í Evrópudeildinni síðasta fimmtudag.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio12+1932
2Roma12+2530
3Inter11+1528
4Como12+1026
5Milan11+1024
6Juventus12+721
7Frosinone11+920
8Napoli12+518
9Bologna12+218
10Genoa12-316
11Cagliari12-716
12Atalanta11-314
13Torino12-314
14Lecce12-1310
15Fiorentina11-89
16Parma12-128
17Sassuolo12-158
18Monza11-87
19Udinese12-136
20Venezia12-176
Gianluigi Donnarumma.

Gianluigi Donnarumma.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.