Fotbolti.net
26.10.20 - 21:45
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Ítalía: Sex mörk skoruð í stórleiknum - Zlatan með þriðju tvennuna í röð

Zlatan er kominn með sex mörk í þremur deildarleikjum á tímabilinu.

Zlatan er kominn með sex mörk í þremur deildarleikjum á tímabilinu.

Canon

Mynd: Getty Images

AC Milan 3 - 3 AS Roma
1-0 Zlatan Ibrahimovic ('2)
1-1 Edin Dzeko ('14)
2-1 Alexis Saelemaekers ('47)
2-2 Jordan Veretout ('71, víti)
3-2 Zlatan Ibrahimovic ('79, víti)
3-3 Marash Kumbulla ('84)
Það hefur verið mikið um mörk á upphafi nýs tímabils á Ítalíu og olli stórleikur AC Milan gegn AS Roma í kvöld ekki vonbrigðum.

Zlatan Ibrahimovic er að gera ótrúlega hluti með Milan og skoraði hann strax á 2. mínútu í dag eftir góðan undirbúning frá Rafael Leao.

Edin Dzeko, sem er aðeins unglamb miðað við Zlatan, jafnaði með skalla eftir hornspyrnu skömmu síðar og var staðan jöfn í hálfleik.

Belgíski kantmaðurinn Alexis Saelemaekers kom Milan yfir á nýjan leik eftir frábæran undirbúning frá Leao. Hann skoraði laglegt mark í upphafi síðari hálfleiks.

Leikurinn var opinn og fjörugur þar sem liðin skiptust á að eiga hættulegar sóknir. Gestirnir frá Róm náðu að jafna á úr vítaspyrnu á 71. mínútu en skömmu síðar fengu heimamenn einnig vítaspyrnu og skoraði Zlatan af punktinum.

Dramatíkin var þó ekki búin því fimm mínútum eftir mark Zlatan gaf Svíinn óvart stoðsendingu í vitlaust mark. Zlatan reyndi að hreinsa hornspyrnu í burtu en gaf boltann þess í stað á varnarmanninn Marash Kumbulla sem skoraði af stuttu færi. Þessi stoðsending frá Zlatan var þrælmögnuð, eins og flest sem hann gerir á vellinum.

Hvorugu liði tókst að stela stigunum þremur þrátt fyrir tilraunir á lokakaflanum og niðurstaðan 3-3 jafntefli.

Milan er á toppi deildarinnar með þrettán stig eftir fimm umferðir. Roma er með átta stig.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Inter9+1525
2Lazio9+1525
3Roma9+1521
4Como9+920
5Milan9+718
6Napoli9+614
7Frosinone8+414
8Juventus9+114
9Torino9013
10Cagliari9-513
11Bologna9011
12Atalanta8-110
13Genoa9-510
14Lecce8-59
15Sassuolo9-88
16Monza9-67
17Udinese9-95
18Parma9-105
19Fiorentina8-104
20Venezia9-133
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.