Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 26. október 2020 09:27
Magnús Már Einarsson
Shelvey í aðgerð - Frá í fjórar vikur
Mynd: Getty Images
Jonjo Shelvey, miðjumaður Newcastle, fer síðar í dag á aðgerð á mjöðm.

Shelvey verður fyrir vikið frá keppni næstu fjórar vikurnar.

Shelvey var ekki með í 1-1 jafnteflinu gegn Wolves í gær vegna meiðslanna en hann hafði spilað alla leiki liðsins fram að því.

„Hann meiddist þegar hann sendi aukaspyrnu inn á teig í síðustu viku og það lítur út fyrir að hann fari í aðgerð á morgun í London," sagði Steve Bruce, stjóri Newcastle, eftir leikinn í gær.
Athugasemdir
banner
banner
banner