Amorim langt frá því að hætta - Wirtz fundaði með City - Ensk stórlið vilja Rodrygo
   mið 26. október 2022 13:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Daníel Laxdal framlengir við Stjörnuna - „Hef enn fullt fram að færa"
Daníel Laxdal
Daníel Laxdal
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Daníel Laxdal hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna. Samningur hans við félagið var að renna út eftir tímabilið en með nýjum samningi er búið að binda enda á óvissu með framtíð Daníels.

Daníel er 36 ára, er uppalinn í Stjörnunni og hefur leikið allan sinn feril með félaginu. Í sumar byrjaði hann 23 deildarleiki, var einu sinni ónotaður varamaður og missti af tveimur leikjum. Hann mun missa af lokaleik tímabilsins vegna leikbanns og byrjar næsta tímabil í eins leiks banni.

Á tímabilinu leysti hann stöðu djúps miðjumanns, miðvarðar og bakvarðar.

„Það er einstakt fyrir hvert félag eða í raun samfélag að fá að njóta þess að fylgjast með mönnum eins og Danna, -mönnum sem gera allt sem í þeirra valdi stendur til að ná árangri fyrir sitt lið og eru tilbúnir að leggja sitt af mörkum. Fyrir okkur Garðbæinga og Stjörnufólk almennt er það heiður að Danni hafi ákveðið að taka slaginn áfram með okkur enda hefur frammistaða hans í sumar verið mjög góð og stuðningur hans við unga leikmenn sem eru að stíga sín fyrstu skref er ómetanlegur," segir Helgi Hrannarr, formaður mfl. ráðs karla í tilkynningu Stjörnunnar.

„Ég er hrikalega ánægður með þessa ákvörðun hjá mér að halda áfram enda finnst mér ég enn hafa fullt fram að færa og finn að við erum að gera ótrúlega spennandi hluti og vonast til að fólk styðji okkur enn betur á komandi tímabili þar sem við ætlum okkur stóra hluti!” segir Daníel Laxdal.
Athugasemdir
banner