Arsenal vill unga spænska varnarmenn - Sancho orðaður við aðra endurkomu til Dortmund - Tottenham vill Trafford
   mið 26. október 2022 07:30
Brynjar Ingi Erluson
„Draumur allra að fá Ronaldo aftur til Sporting"
Cristiano Ronaldo
Cristiano Ronaldo
Mynd: EPA
Ruben Amorim, þjálfari Sporting Lisbon í Portúgal, segir að það sé draumur allra sem tengjast félaginu að fá Cristiano Ronaldo frá Manchester United.

Ronaldo, sem er 37 ára gamall, hefur lítið fengið að spila með United á þessari leiktíð og hefur verið að hugsa sér til hreyfings síðan í sumar.

Hann var settur í agabann eftir 2-0 sigurinn á Tottenham í síðustu viku en hann yfirgaf völlinn áður en flautað var til leiksloka og var þá ekki í klefanum þegar leikmenn mættu þangað til að fagna.

Því var hann ekki með gegn Chelsea um helgina en hann gæti þó snúið aftur í liðið á morgun er United mætir Sheriff í Evrópudeildinni.

Ronaldo gæti reynt að yfirgefa United í janúar og hafa mörg félög verið nefnd til sögunnar. Þrjú félög í MLS-deildinni vilja fá hann en gæti hann snúið aftur til Sporting, þar sem hann hóf meistaraflokksferil sinn? Ruben Amorim, þjálfari Sporting, segir það draum allra hjá félaginu að fá hann aftur.

„Ronaldo er toppleikmaður og er leikmaður Manchester United. Ég ætla að svara á sama hátt og ég svara mörgum blaðamönnum í Portúgal sem spyrja mig að þessu; hann er leikmaður Manchester United," sagði Amorim, þjálfari Sporting, á blaðamannafundi í gær.

„Allir sem tengjast Sporting dreyma að fá Cristiano aftur, en við höfum ekki efni á að borga launin hans. Ég held að hann sé ánægður í Manchester, en hann er ekki að spila og það er aðal vandamálið," sagði hann í lokin.
Slapp
banner