Fotbolti.net
26.10.22 - 22:41
Brynjar Ingi Erluson

Einkunnir úr Meistaradeildinni: Robertson og Salah frábærir

Mohamed Salah skoraði og lagði upp í sigri Liverpool

Mohamed Salah skoraði og lagði upp í sigri Liverpool

Canon

Mynd: EPA

Andy Robertson og Mohamed Salah voru bestu menn leiksins er Liverpool vann Ajax 3-0 og kom sér áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í kvöld, en það er Liverpool Echo sem gefur einkunnir eftir leik.
Salah skoraði og lagði upp í leiknum á meðan Robertson lagði upp mark Darwin Nunez í leiknum.

Báðir áttu góðan leik og sáu þeir til þess að koma Liverpool áfram í úrslitakeppnina.

Liverpool: Alisson (7), Alexander-Arnold (6), Gomez (6), Van Dijk (7), Robertson (8), Fabinho (6), Elliott (7), Henderson (7), Salah (8), Firmino (7), Nunez (7).
Varamenn: Jones (6), Milner (6), Bajcetic (6), Carvalho (6).

Rodrigo Bentancur var besti maður Tottenham í 1-1 jafnteflinu gegn Sporting. Hann fær átta. Bentancur skoraði jöfnunarmarkið í leiknum þegar tæpar tíu mínútur voru eftir.

Tottenham: Lloris (7), Romero (6), Dier (5), Davies (6), Doherty (5), Hojbjerg (7), Bentancur (8), Perisic (6), Moura (5), Kane (6), Son (6).
Varamenn: Gil (7), Lenglet (5), Emerson (5).
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.