Fotbolti.net
26.10.22 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Í samstarfi við styrktaraðila

Meistaradeildin í dag - Liverpool áfram í 16-liða úrslit?

Liverpool mætir Ajax

Liverpool mætir Ajax

Canon

Mynd: EPA

Fimmta umferð í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu klárast í kvöld með átta leikjum. Liverpool getur tryggt sæti sitt í 16-liða úrslitin en Barcelona er mögulega á leið úr keppni.
Napoli er komið áfram úr A-riðli en það er enn mikið undir. Liðið vill tryggja efsta sætið í riðlinum. Sem stendur er Napoli með 12 stgi en Liverpool í öðru sæti með 9 stig. Liverpool mætir Ajax í Hollandi en Liverpool dugir stig til að komast áfram.

Í B-riðli gerðist það óvænta að belgíska félagið Club Brugge tryggði sig í 16-liða úrslitin í síðustu umferð. Porto, Atlético Madríd og Bayer Leverkusen berjast um síðasta lausa sætið. Þar stendur Porto í ágætis málum en liðið er með 6 stig og mætir toppliði Brugge í kvöld. Atlético spilar við Leverkusen en Atlético er með 4 stig á meðan Leverkusen er með 3 stig á botninum.

Barcelona er að öllum líkindum á leið úr keppni í kvöld. Í C-riðli mætir Barcelona toppliði Bayern á Nou Camp. Barcelona þarf sigur og á sama tíma að treysta á það að Inter tapi stigum gegn Viktoria Plzen. Ef Inter sigrar Plzen þá er Barcelona úr leik.

Jafnasti riðillinn er D-riðill. Tottenham er á toppnum með 7 stig en Marseille og Sporting koma næst með 6 stig á meðan Frankfurt er á botninum með 4 stig. Tottenham getur tryggt sig í 16-liða úrslitin með sigri á Sporting. Marseille getur einnig tryggt sæti sitt en til þess þarf liðið að vinna Frankfurt og vonast til að Sporting tapi sínum leik.

Riðlakeppni Meistaradeildar kvenna er einnig spiluð í kvöld en Sveindís Jane Jónsdóttir verður á ferðinni með Wolfsburg sem spilar við Slavía Prag. Berglind Björg Þorvaldsdóttir og stöllur í Paris Saint-Germain spila þá við Real Madrid.

PSG spilar í A-riðli og er að spila annan leik sinn í riðlinum en það tapaði fyrsta leiknum fyrir Chelsea. Wolfsburg spilar í B-riðli og vann fyrsta leik sinn gegn St. Pölten, 4-1.

Leikir dagsins:

A-riðill
19:00 Napoli - Rangers
19:00 Ajax - Liverpool

B-riðill
16:45 Club Brugge - Porto
19:00 Atletico Madrid - Leverkusen

C-riðill
16:45 Inter - Plzen
19:00 Barcelona - Bayern

D-riðill
19:00 Tottenham - Sporting
19:00 Eintracht Frankfurt - Marseille

Meistaradeild kvenna
16:45 Real Madrid W - PSG W
16:45 St. Polten W - Roma W
19:00 Chelsea W - Vllaznia W
19:00 Slavia Praha W - Wolfsburg
Barcelona á leið úr Meistaradeildinni?

Barcelona á leið úr Meistaradeildinni?

Canon

Mynd: EPA

Sveindís Jane verður í eldlínunni með Wolfsburg

Sveindís Jane verður í eldlínunni með Wolfsburg

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.