Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   lau 26. nóvember 2022 14:30
Aksentije Milisic
De Bruyne: Getum ekki unnið HM því við erum of gamlir
Mynd: Getty Images

Belginn Kevin De Bruyne hefur ekki mikla trú á því að Belgía geti farið alla leið og unnið HM í Katar en liðið vann sinn fyrsta leik gegn Kanada í F-riðli.


Belgar voru ekki sannfærandi og voru í raun heppnir að vinna en Kanada spila mjög vel og klúðraði vítaspyrnu á meðal annars.

De Bruyne var valinn maður leiksins en hann var sjálfur hissa á því og sagðist ekki hafa spilað mjög vel í leiknum. Hann var spurður út í möguleika liðsins á að vinna Heimsmeistaramótið.

„Nei, ekki séns. Við erum alltof gamlir," sagði Belginn.

„Möguleikinn okkar var árið 2018. Við erum með gott lið en við erum að eldast. Við höfum misst nokkra lykilmenn og við erum að fá aðra góða í staðinn. Þeir eru þó ekki í sama gæðaflokki og þeir sem voru árið 2018. Við erum ekki í hópi líklegustu liðanna til að vinna mótið."

Belgía mætir Marokkó á morgun klukkan 13 en Króatía og Kanada mætast í sama riðli klukkan 16.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner