Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 26. nóvember 2022 16:00
Elvar Geir Magnússon
Vigfús Arnar spáir í Argentína - Mexíkó
Vigfús Arnar Jósepsson.
Vigfús Arnar Jósepsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Margir ráku upp stór augu þegar Argentína tapaði fyrir Sádi-Arabíu í fyrstu umferð riðlakeppninnar. Lionel Messi og hans menn mæta næst Mexíkó í leik sem liðið þarf að vinna.

Mexíkó gerði markalaust jafntefli gegn Póllandi í fyrstu umferð.

Vigfús Arnar Jósepsson, þjálfari Leiknis í Breiðholti, er spámaður Fótbolta.net fyrir þennan leik.

Argentína 3 - 1 Mexíkó
Ég spái því að Argentína rífi sig í gang eftir vonbrigðin í fyrstu umferð. Ég held að Lionel Messi muni leika listir sínar, skora eitt og leggja upp tvö. Lautaro Martínez skorar tvö mörk og Argentína mun koma sér upp úr riðlinum.


Athugasemdir
banner
banner
banner