Matues Mane einn eftirsóttasti bitinn - Everton vill Delap - Tekur Keane við Palace?
   mán 26. desember 2022 23:53
Brynjar Ingi Erluson
Arteta: Ég gaf Nketiah verðskuldað knús
Eddie Nketiah skoraði þriðja mark Arsenal
Eddie Nketiah skoraði þriðja mark Arsenal
Mynd: EPA
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var í skýjunum með frammistöðu enska framherjans Eddie Nketiah í 3-1 sigrinum á West Ham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Nketiah er að leysa Gabriel Jesus af en brasilíski framherjinn verður frá vegna meiðsla fram í mars.

Englendingurinn hefur margoft sýnt gæði sín en samræmið þó ekki verið til staðar.

Hann skoraði fyrsta deildarmark sitt á tímabilinu í kvöld og vonast Arteta til þess að þetta gefi honum meira sjálfstraust.

„Við sýndum mikla yfirvegun og gæði. Við byrjuðum ekki að spila leikinn sem þeir vildu að við spiluðum. Við héldum áfram að ýta á þá, trúa og var sigurinn verðskuldaður.“

Arteta segist hafa séð Nketiah standa sig vel á æfingum síðustu mánuði og var bara tímaspursmál hvenær markið kæmi.

„Ég gaf honum stórt knús því hann átti það algjörlega skilið miðað við hvernig hann spilaði. Hann sýndi styrk, gæði, góður að tímasetja sig og yfirvegunin í afgreiðslunni var góð. Þetta var stórkostleg frammistaða frá honum.“

„Hann hefur verið að reyna í síðustu leikjum og hefur svo sannarlega allt sem þarf til að skora. Við sjáum þetta á hverjum degi á æfingasvæðinu og þetta mun gefa honum mikið sjálfstraust,“
sagði Arteta um framherjann.

Arsenal er áfram á toppnum með sjö stiga forystu á Manchester City.
Athugasemdir
banner
banner