Andy Cole fyrrum framherji Manchester United var allt annað en sáttur þegar sérfræðingur um Liverpool á Twitter bar hann saman við Darwin Nunez leikmann Liverpool.
Nunez gekk til liðs við Liverpool í sumar og hefur átt misjöfnu gengi að fagna í upphafi ferilsins hjá enska félaginu.
Twitter notandinn gengur undir nafninu DaveOCKOP en hann sagði að Nunez og Cole væru líkir af því leitinu til að þeir klikka á mörgum færum en það kemur ekki að sök þar sem þeir fá helling að færum.
Cole var ekki sáttur með þetta og svaraði Dave fullum hálsi.
„Fólk þarf að hætta að vanvirða nafnið mitt. Því ég spila ekki leikinn, bara rólegur gaur að halda áfram með lífið og þá heldur fólk að það geti vanvirt mig. Skoðaðu tölurnar og berðu þær saman við einhvern annan," sagði Cole.
?? Andy Cole is the 4th highest Premier League goalscorer of all-time, scoring 187 goals with 0 of them penalties.
— GiveMeSport (@GiveMeSport) December 24, 2022
???? He also won the Premier League Golden Boot at 22.
???? Put some respect on his name. pic.twitter.com/vwEQM44SxS