Fotbolti.net
27.01.20 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson

Guardiola: Liverpool myndi vinna allar deildir í Evrópu

Guardiola: Liverpool myndi vinna allar deildir í Evrópu
Canon

Mynd: Getty Images

Josep Guardiola og lærisveinar hans í Manchester City bjuggust við að berjast um Englandsmeistaratitilinn á leiktíðinni eftir að hafa unnið deildina tvö ár í röð.
Raunin er þó önnur þar sem óstöðvandi lið Liverpool er með 16 stiga forystu á City og leik til góða. Liverpool er búið að vinna alla deildarleiki sína hingað til nema einn, sem lauk með jafntefli á Old Trafford.

Guardiola hefur miklar mætur á þessu gífurlega sterka Liverpool liði og segir þetta vera besta lið í heimi.

„Liverpool mun augljóslega vinna úrvalsdeildina í ár en liðið myndi vinna allar aðrar deildir í Evrópu. Með 22 sigra og 1 jafntefli eftir 23 umferðir verður þú meistari í hvaða deild sem er," sagði Guardiola.

„Ef við skoðum undanfarin ár í úrvalsdeildinni þá vann Chelsea deildina og missti af meistaradeildarsæti á næstu leiktíð. Svo vann Leicester og missti af topp fjórum ári síðar og svo gerði Chelsea það aftur. Við unnum tvö ár í röð.

„Í spænsku deildinni værum við einum eða tveimur stigum frá toppnum, sama á við um þýsku og ítölsku deildina líka. Liverpool er stórfenglegt lið og við verðum að samþykkja það og læra af því."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal6+515
3Brighton6+1313
4Brentford6+610
5Chelsea6+210
6Leeds6+39
7Liverpool5+39
8Everton5+39
9Ipswich Town6-39
10Hull City5+28
11Newcastle508
12Man Utd606
13Nott. Forest5-15
14Aston Villa6-55
15Crystal Palace5-54
16Sunderland6-64
17Bournemouth6-63
18Tottenham6-63
19Coventry5-93
20Fulham6-42
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.