Manchester United tapaði gríðarlega óvænt fyrir Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Sheffield United hafa verið hörmulegir á tímabilinu til þessa og höfðu aðeins náð í fimm stig í 19 leikjum fyrir leikinn í kvöld. Þeir mættu hins vegar á Old Trafford og börðust eins og ljón.
Harry Maguire jafnaði fyrir Man Utd á 64. mínútu eftir að Sheffield United hafði tekið forystuna í fyrri hálfleik. Sheffield United tók hins vegar aftur forystuna á 74. mínútu.
Það óhætt að segja að Man Utd hafi ekki sýnt besta varnarleik sem sést hefur í markinu. Markið má sjá hérna. Það var engin ákefð í varnarleiknum og það tókst hörmulega að koma boltanum í burtu.
„Þetta var lélegasti varnarleikur í sögu knattspyrnunnar eins og hún leggur sig," skrifaði Tryggvi Páll Tryggvason, stuðningsmaður Man Utd á Twitter og fleiri tóku í sama streng.
Þetta var lélegasti varnarleikur í sögu knattspyrnunnar eins og hún leggur sig.
— Tryggvi Páll (@tryggvipall) January 27, 2021
Awful defending.
— Simon Stone (@sistoney67) January 27, 2021
Horrendous, casual defending from #mufc. They've gone 2-1 down and Van de Beek, James and Mata have gone to warm up again. Another strange delay to changes. #mufc
— Samuel Luckhurst (@samuelluckhurst) January 27, 2021
That is the worst defending I've ever seen in my life 😭😭😭😭
— Pøgba Senior (@TheSaItIsHere) January 27, 2021
Athugasemdir