Fotbolti.net
27.02.21 - 17:10
Victor Pálsson

Championship: Jón Daði spilaði lítið í tapi - Swansea tapaði heima

Championship: Jón Daði spilaði lítið í tapi - Swansea tapaði heima
Canon

Mynd: Getty Images

Jón Daði Böðvarsson kom inná sem varamaður hjá Millwall í dag sem spilaði við Barnsley í ensku Championship-deildinni.
Jón Daði fékk ekki margar mínútur að þessu sinni en hann kom við sögu á 85. mínútu í leik sem tapaðist 2-1.

Millwall er að dragast úr baráttu um umspilssæti og er nú níu stigum frá Bournemouth sem situr í sjötta sætinu.

Það voru fjölmargir aðrir leikir á dagskrá en stórleikurinn er á morgun þegar Norwich og Brentford eigast við í toppslag. Liðin eru í tveimur efstu sætum deildarinnar.

Baráttan um umspilssæti er afar hörð en Swansea tapaði dýrmætum stigum á heimavelli í dag gegn Bristol City.

Swansea var að tapa sínum öðrum leik af síðustu þremur en er enn í fjórða sætinu með tvo leiki til góða á önnur lið í kring.

Gengi Reading hefur verið brösugt upp á síðkastið en liðið vann 1-0 útisigur á Rotherham og lyfti sér upp í fimmta sætið.

Barnsley 2 - 1 Millwall
1-0 Cauley Woodrow ('2 )
1-1 Mason Bennett ('6 )
2-1 Michal Helik ('59 )

Birmingham 2 - 1 QPR
0-1 Charlie Austin ('44 )
1-1 Kristian Pedersen ('82 )
2-1 Alen Halilovic ('85 )

Blackburn 1 - 1 Coventry
1-0 Ben Brereton ('27 )
1-1 Matthew James ('50 )
Rautt spjald: Leo Ostigard, Coventry ('82)

Brentford 2 - 1 Stoke City
0-1 Jacob Brown ('1 )
1-1 Vitaly Janelt ('56 )
2-1 Ivan Toney ('78 )

Luton 3 - 2 Sheffield Wed
0-1 Josh Windass ('6 )
0-2 Josh Windass ('42 )
1-2 Kal Naismith ('50 )
2-2 Ryan Tunnicliffe ('58 )
3-2 Elijah Adebayo ('86 )

Middlesbrough 1 - 1 Cardiff City
0-1 Sean Morrison ('37 )
1-1 Paddy McNair ('82 )

Preston NE 3 - 0 Huddersfield
1-0 Brad Potts ('24 )
2-0 Ched Evans ('67 )
3-0 Scott Sinclair ('80 )

Rotherham 0 - 1 Reading
0-1 Michael Morrison ('25 )

Swansea 1 - 3 Bristol City
1-0 Andre Ayew ('55 , víti)
1-1 Nahki Wells ('66 )
1-2 Kasey Palmer ('80 )
1-3 Antoine Semenyo ('90 )

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough17+1435
2Wolves17+1234
3Stoke City16+732
4Birmingham16+1329
5West Brom16+829
6Southampton17+1628
7QPR17+728
8Swansea17+327
9Sheffield Utd17+626
10Portsmouth17+326
11Norwich17+925
12West Ham17+1324
13Blackburn16-122
14Wrexham17-122
15Charlton Athletic17-720
16Bristol City17-1019
17Cardiff City17-518
18Millwall16-518
19Bolton16-918
20Watford16-1415
21Lincoln City17-1615
22Preston NE17-1312
23Burnley16-911
24Derby County17-2110
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.