Fotbolti.net
27.02.21 - 14:41
Victor Pálsson

Championship: Sterkur sigur Bournemouth gegn Watford

Championship: Sterkur sigur Bournemouth gegn Watford
Canon

Mynd: Getty

<b>Bournemouth 1 - 0 Watford</b>
1-0 Arnaut Danjuma('61)
Bournemouth vann afar mikilvægan sigur í Championship-deildinni í dag er liðið mætti Watford á heimavelli sínum í 33. umferð deildarinnar.

Bæði lið stefna að því að komast í efstu deild á ný eftir að hafa fallið úr úrvalsdeildinni í fyrra.

Hollendingurinn Arnaut Danjuma reyndist munurinn á þessum liðum í dag en hann gerði eina mark leiksins fyrir Bournemouth í seinni hálfleik.

Bournemouth er nú með 52 stig í fimmta sæti deildarinnar en Watford er tveimur sætum ofar í því þriðja.

Watford er með jafn mörg stig og Brentford sem er sæti ofar en annað sætið gefur beinan farseðil upp í efstu deild.

Bæði lið kláruðu leik með tíu menn en þeir Jack Wilshere og Joao Pedro fengu að líta rautt spjald þegar örfáar sekúndur voru eftir.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough13+1328
2Swansea13+726
3Wolves13+724
4West Brom13+524
5Southampton13+1523
6Birmingham13+1023
7Stoke City13+423
8West Ham13+1522
9QPR13+520
10Sheffield Utd13+219
11Portsmouth13+119
12Millwall13+218
13Blackburn13-118
14Bristol City13-218
15Norwich13-115
16Lincoln City13-915
17Cardiff City13-114
18Wrexham13-414
19Bolton13-814
20Charlton Athletic13-1014
21Watford13-1111
22Burnley13-89
23Derby County13-147
24Preston NE13-175
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.