Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 27. apríl 2020 15:30
Elvar Geir Magnússon
Bjóða Inter að fá Cavani
Edinson Cavani.
Edinson Cavani.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Umboðsmaður úrúgvæska sóknarmannsins Edinson Cavani hefur haft samband við Inter og boðið félaginu að fá leikmanninn.

Þetta segir Gazzetta dello Sport.

Cavani verður samningslaus í sumar og því fáanlegur á frjálsri sölu.

Ólíklegt er að Alexis Sanchez verði hjá Inter á næsta tímabili. Félagið hefur áhuga á Olivier Giroud en það stefnir í að hann verði áfram hjá Chelsea.

Hinn 33 ára Cavani þekkir ítalska boltann vel en hann skoraði yfir 100 mörk fyrir Palermo og Napoli milli 2007 og 2013.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner