Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 27. apríl 2020 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Fernandinho: Sakna þess að spila fótbolta
Fernandinho
Fernandinho
Mynd: Getty Images
Fernandinho, leikmaður Manchester City á Englandi, saknar þess að spila fótbolta og vonast til þess að komast á æfingasvæði félagsins sem allra fyrst.

Fernandinho framlengdi samning sinn við City fyrr á árinu en hann hefur verið lykilmaður í liðinu og hefur átt stóran þátt í mögnuðum árangri félagsins síðustu ár.

Hann vonast til að koma á völlinn sem allra fyrst og að ástandið batni í heiminum.

„Ég sakna þess mjög að spila fótbolta. Það er ekki bara fótboltinn, heldur sakna ég þess að hitta liðsfélagana, þjálfaraliðið og allt fólkið sem kemur að klúbbnum," sagði Fernandinho.

„Ég sakna þess að mæta á æfingasvæðið á morgnana og spjalla við alla í eldhúsinu. Þetta er erfiður tími fyrir alla og ég er að finna fyrir þessu núna því ég sakna þeirra," sagði hann ennfremur.
Athugasemdir
banner
banner
banner