Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 27. apríl 2020 17:30
Magnús Már Einarsson
Gamla markið: Chilavert skorar fyrir aftan miðju
Mynd: Getty Images
Í fótboltalausa tímabilinu er um að gera að rifja upp gamalt og gott mark.

Markvörðurinn Jose Luis Chilavert skoraði talsvert úr auka og vítaspyrnum á ferli sínum en hann skoraði meðal annars átta mörk fyrir landslið Paragvæ.

Árið 1996 skoraði Chilavert magnað mark úr aukaspyrnu fyrir aftan miðju í leik með Velez Sarsfield gegn River Plate í Argentínu.

Chilavert sá að kollegi sinn í marki River Plate var óviðbúinn og lét vaða með góðum árangri eins og sjá má hér að neðan.

Ef þú átt hugmynd að góðu marki til að rifja upp sendu þá tölvupóst á [email protected]

Eldra efni í „gamla markið"


Athugasemdir
banner
banner
banner