mán 27. apríl 2020 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Ndidi ánægður hjá Leicester: Nýt þess að spila hér
Wilfred Ndidi
Wilfred Ndidi
Mynd: Getty Images
Nígeríski miðjumaðurinn Wilfred Ndidi nýtur þess að spila með Leicester City og er ekki farinn að hugsa sér til hreyfings en hann greindi frá þessu í viðtali við ESPN.

Ndidi hefur átt frábært tímabil með Leicester en liðið er í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar og er í baráttu um Meistaradeildarsæti.

Frammistaða hans hefur vakið áhuga frá liðum á borð við Arsenal og Manchester United en Ndidi er ánægður hjá Leicester.

„Við erum að gera góða hluti og ég nýt þess að spila hér. Ég er samningsbundinn Leicester," sagði Ndidi.

„Ég er að læra og reyna að bæta mig á hverjum degi. Mér gengur ágætlega, svo það er engin þörf á því að fara," sagði hann ennfremur.

Ndidi er samningsbundinn Leicester til 2024 en hann var keyptur frá Genk á 15 milljónir punda árið 2017.
Athugasemdir
banner
banner
banner