Fotbolti.net
27.04.21 - 19:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Championship: Brentford í 3. sæti - Góð úrslit fyrir Derby

Mbeumo skoraði sigurmarkið í dag

Mbeumo skoraði sigurmarkið í dag

Canon

Mynd: Getty Images

<b>Brentford 1 - 0 Rotherham</b>
1-0 Bryan Mbeumo ('26 )

Brentford er nálægt því að tryggja sér þriðja sætið í ensku Championship deildinni. Endi liðið í þriðja sæti þá mætir liðið liðinu í sjötta sæti í undanúrslitum umspilsins. Í umspilinu er leikið heima og heiman og svo úrslitaleikur á Wembley þar sem sigurvegarar einvíganna tveggja mætast. Liðin í fjórða og fimmta sæti mætast í hinu einvíginu.
Brentford er í þriðja sæti með fjögurra stigia forskot á næstu lið þegar tvær umferðir eru eftir.

Liðið vann Rotherham með einu marki gegn engu í leik sem liðin áttu til góða í dag. Bryan Mbeumo skoraði eina mark leiksins á 26. mínútu eftir undirbúning Sergi Canos.

Rotherham er í mikilli fallbaráttu, liðið er í fallsæti og fjórum stigum á eftir Derby. Rotherham á þrjá leiki eftir á meðan önnur lið í kring eiga tvo leiki eftir.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough13+1328
2Birmingham14+1326
3Stoke City14+526
4Swansea14+526
5West Brom14+525
6Southampton14+1524
7Wolves13+724
8West Ham13+1522
9Sheffield Utd14+322
10Portsmouth14+322
11QPR14+521
12Norwich14+318
13Millwall14-118
14Blackburn14-218
15Bristol City13-218
16Bolton14-717
17Lincoln City14-1015
18Cardiff City13-114
19Wrexham13-414
20Watford14-1014
21Charlton Athletic14-1114
22Burnley14-810
23Derby County14-187
24Preston NE14-185
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.