mán 27. maí 2019 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Ribery grét þegar hann var kvaddur
Mynd: Getty Images
Franck Ribery kvaddi stuðningsmenn FC Bayern í gær og réði hann ekki við tilfinningarnar eftir 12 frábær ár hjá félaginu.

Ribery átti erfitt með að hemja tárin á þessari tilfinningaþrungnu stundu. Hann spilaði 425 leiki fyrir félagið, skoraði 124 mörk og lagði 182 upp.

„Þetta voru frábær 12 ár. Við unnum saman og fögnuðum saman. Takk fyrir allt. Ég elska ykkur."

Ribery er 36 ára gamall og lék 81 leik fyrir franska landsliðið frá 2006 til 2014.

Ekki er vitað hvert hann er að fara í sumar.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner