Varnarmaðurinn reyndi Grétar Sigfinnur Sigurðarson gæti spilað með KV í 3. deildinni í sumar en hann hefur æft með liðinu undanfarið.
„Það verður mjög spennandi að sjá hvort Grétar Sigfinnur taki slaginn. Hann hefur verið að æfa á fullu og er í standi," sagði Atli Jónasson í hlaðvarpsþættinum Ástríðunni í gær.
KV var í toppbaráttu í 3. deildinni í fyrra en liðinu er spáð efsta sæti í deildinni í spá Ástríðunnar.
Hinn 37 ára gamli Grétar er skráður í KV en hann skipti yfir í félagið vorið 2018. Hann hefur hins vegar ekki ennþá spilað mótsleik með liðinu. Grétar spilaði sjálfur síðast með Þrótti R. í 1. deildinni árið 2017.
Grétar er sigursæll leikmaður sem lék um áraraðir með KR auk þess sem hann hefur leikið með Val og Víkingi R.
Athugasemdir