Fotbolti.net
27.05.23 - 11:20
Aksentije Milisic

Lokaumferð þýsku úrvalsdeildarinnar í dag - Hvað getur gerst?

Dortmund getur landað þeim stóra.

Dortmund getur landað þeim stóra.

Canon

Mynd: EPA

Lokaumferðin í þýsku úrvalsdeildinni fer fram í dag en það er gífurlega mikil spenna á öllum vígstöðum.

Barist er um titilinn, Evrópusæti og sæti í deildinni og því verður mjög áhugavertu að fygjast með en allir leikirnir hefjast klukkan 13:30 í dag og má sjá hvaða lið mætast hér neðst í fréttinni.

Dortmund er í efsta sæti deildarinnar með 70 stig á meðan Bayern Munchen er í öðru sætinu með 68. Þýskalandsmeistararnir eru hins vegar með miklu betri markatölu en Dortmund svo það myndi duga fyrir Bayern að vinna sinn leik ef Dortmund gerir jafntefli.

Dortmund mætir Mainz á heimavelli en Mainz siglir lignan sjó í 8 sæti deildarinnar á meðan Bayern Munchen mætir Köln á útivelli. Köln er heldur ekki að spila um neitt nema stoltið er liðið er í tíunda sætinu.

Þá er baráttan mikil um síðasta sætið sem gefur keppnisrétt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Um það sæti berjast Union Berlin og Freiburg en þessi lið hafa aldrei spilað í þessari stærstu keppni heims.

Liðin eru jöfn að stigum með 59 stig en Union er með betri markatölu en þar munar fjórum mörkum. Union mætir Werder Bremen á heimavelli á meðan Freiburg heimsækir Frankfurt.

Þá eru það þrjú lið sem berjast um sjötta sæti deildarinnar en það eru Bayer Leverkusen, Wolfsburg og Frankfurt. Sjötta sætið mun gefa sæti í umspili fyrir Sambandsdeildina en þetta sæti gæti einnig gefið Evrópudeildarsæti ef RB Leipzig vinnur Frankfurt í úrslitaleik bikarsins.

Liðið sem hafnar í sjöunda sætinu, þar sem Wolfsburg er fyrir lokaumferðina, mun gefa umspilssæti fyrir Sambandsdeildina ef RB Leipzig vinnur í úrslitaleik bikarsins.

Síðast en ekki síst er það fallbaráttan. Þar eru alls fjögur lið að berjast en Hertha Berlin er fallið. Schalke 04 er í næst neðsta sætinu með 31 stig og fyrir ofan liðið eru Bochum og Stuttgart með 32 stig og svo Augsburg með 34. Liðið sem endar í 16 sætinu eða þriðja neðsta sæti deildarinnar fer í umspil um laust sæti í deildinni við lið úr B deildinni en Hamburg er í því sæti þessa stundina. Sjá má leiki dagsins og töfluna hér fyrir neðan.

Borussia D. 13:30 Mainz

RB Leipzig 13:30 Schalke 04

Union Berlin 13:30 Werder

Koln 13:30 Bayern

Borussia M. 13:30 Augsburg

Eintracht Frankfurt 13:30 Freiburg

Wolfsburg 13:30 Hertha

Bochum 13:30 Bayer

Stuttgart 13:30 Hoffenheim

Tuchel treystir á Mainz.

Tuchel treystir á Mainz.

Canon

Mynd: Getty Images

Tekst Schalke að halda sér uppi?

Tekst Schalke að halda sér uppi?

Canon

Mynd: Getty Images

Verður mögulega fagnað í Berlín í dag.

Verður mögulega fagnað í Berlín í dag.

Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Augsburg000
1Borussia D.2+56
2Bayern2+46
2Bayer000
3Bayern000
3Hamburger2+36
4Borussia D.000
4Borussia M.2+14
5Borussia M.000
5Hoffenheim2+14
6Eintracht Frankfurt000
6Freiburg2+14
7Elversberg000
7Schalke 041+23
8Freiburg000
8Hannover1+13
9Hertha203
9Hamburger000
10Hoffenheim000
10Stuttgart2-13
11Koln000
11Wolfsburg2-23
12Augsburg2-11
12Mainz000
13Paderborn000
13Eintracht Frankfurt2-11
14RB Leipzig000
14Bayer2-21
15Schalke 04000
15Mainz2-20
16Wolfsburg34-2429
16Koln2-30
16Stuttgart000
17Union Berlin000
17Heidenheim34-3126
17RB Leipzig2-30
18Werder000
18Werder2-30
18St. Pauli34-3126
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.