Belgía mætir Englandi í úrslitaleik um toppsæti G-riðils eftir sigra gegn Túnis og Panama í fyrstu umferðunum.
Romelu Lukaku, sem er kominn með fjögur mörk, verður ekki með gegn Englandi á morgun vegna meiðsla.
Roberto Martinez, þjálfari Belga, staðfesti þetta á fjölmiðlafundi í dag. Lukaku meiddist gegn Túnis en talið er að hann verði klár í slaginn fyrir 16-liða úrslitin.
Harry Kane er markahæstur á mótinu hingað til, með fimm mörk. Lukaku og Cristiano Ronaldo koma þar á eftir með fjögur, á undan Diego Costa og Denis Cheryshev sem eru með þrjú.
Athugasemdir