Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   fim 27. júní 2019 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
HM kvenna í dag - Lærimeyjar Neville gegn Maríu
Phil Neville ætlar alla leið með sínar stelpur.
Phil Neville ætlar alla leið með sínar stelpur.
Mynd: Getty Images
Í kvöld hefjast 8-liða úrslitin á Heimsmeistaramóti kvenna í Frakklandi.

Það er einn leikur á dagskrá og í honum eigast við Noregur og England; María Þórisdóttir og stöllur hennar mæta lærimeyjum Phil Neville.

Noregur vann Ástralíu í vítaspyrnukeppni í 16-liða úrslitunum á meðan England vann 3-0 sigur á Kamerún í vægast sagt furðulegum leik.

Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19:00 og er í beinni útsendingu á aðalrás RÚV.

Leikur kvöldsins:
19:00 Noregur - England (RÚV)

Sjá einnig:
María Þórisdóttir: Þessi leikur fylgir mér enn
Athugasemdir
banner
banner