Vængir Júpiters 2 - 2 KFG
0-1 Gunnar Helgi Hálfdánarson ('14)
1-1 Aron Páll Símonarson ('43, víti)
2-1 Fannar Örn Fjölnisson ('51)
2-2 Kári Pétursson ('65, víti)
0-1 Gunnar Helgi Hálfdánarson ('14)
1-1 Aron Páll Símonarson ('43, víti)
2-1 Fannar Örn Fjölnisson ('51)
2-2 Kári Pétursson ('65, víti)
Næst síðasti leikurinn í áttundu umferð 3. deildar karla fór fram í kvöld þegar Vængir Júpiters tóku á móti KFG.
KFG komst yfir á 14. mínútu þegar Gunnar Helgi Hálfdánarson skoraði, en Vængir náðu að svara með marki úr vítaspyrnu rétt fyrir leikhlé. Markið gerði Aron Páll Símonarson.
Vængir tóku svo forystuna á 51. mínútu þegar Fannar Örn Fjölnisson skoraði, en Kári Pétursson jafnaði fyrir KFG af vítapunktinum um stundarfjórðungi síðar.
Ekki urðu mörkin fleiri og 2-2 jafntefli niðurstaðan. KFG er í sjötta sæti með tíu stig og Vængir eru í níunda sæti með níu stig.
Athugasemdir