Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 27. júlí 2020 20:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Championship: Onomah með glæsimark og Fulham í kjörstöðu
Josh Onomah.
Josh Onomah.
Mynd: Getty Images
Cardiff City 0 - 2 Fulham
0-1 Josh Onomah ('49 )
0-2 Neeskens Kebano ('90 )

Fulham er í kjörstöðu í einvígi sínu gegn Cardiff í undanúrslitum umspilsins í Championship-deildinni á Englandi.

Fulham sótti Cardiff heim og staðan var markalaus eftir kaflaskiptan fyrri hálfleik. Í byrjun seinni hálfleiksins skoraði Josh Onomah glæsilegt mark.

Það má sjá með því að smella hérna.

Fulham var heilt yfir betri aðilinn og þeir skoruðu annað mark undir lokin. Neeskens Kebano var þar að verki. Liðin mætast aftur í London á heimavelli Fulham síðar í vikunni. Fulham er í mikilli kjörstöðu er varðar það að koma sér í úrslitaleikinn á Wembley.

Sjá einnig:
Championship: Ayew úr skúrki í hetju
Athugasemdir
banner
banner