„Ég er ánægður með mína stráka," sagði Gunnar Guðmundsson, þjálfari Þróttar, eftir 3-0 tap gegn ÍBV í Lengjudeildinni.
„Menn lögðu sig 100 prósent í þetta og mér fannst þetta vera leikur alveg þangað til í lokin. Það var óþarfi að fá þessi tvö mörk á okkur í lokin," sagði Gunnar.
„Menn lögðu sig 100 prósent í þetta og mér fannst þetta vera leikur alveg þangað til í lokin. Það var óþarfi að fá þessi tvö mörk á okkur í lokin," sagði Gunnar.
Lestu um leikinn: ÍBV 3 - 0 Þróttur R.
Þróttur er í næst neðsta sæti Lengjudeildarinnar með aðeins eitt stig eftir átta leiki. Gunnar segir að stefnan sé að styrkja liðið þegar félagskiptaglugginn opnar í byrjun ágúst.
„Auðvitað skoðum við alla möguleika. Við teljum að við þurfum að styrkja okkur í glugganum. Við erum að skoða þau mál."
Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir