Heimir Guðjónsson var sáttur með 3-1 sigur sinna manna gegn Fjölni í Grafarvoginum fyrr í kvöld. Valur tyllti sér á topp deildarinnar með sigrinum en Fjölnir situr enn á sigurs á botni deildarinnar.
Lestu um leikinn: Fjölnir 1 - 3 Valur
„Við erum mjög ánægðir, erfiður útivöllur og Fjölnismenn spiluðu virkilega vel í síðasta leik á móti KR en við byrjuðum þetta vel fannst mér og komum inn tveimur mörkum en vorum svolítið opnir varnarlega.''
Hvað er langt í Patrick Pedersen?
„Hann verður klár á föstudaginn.''
Hver er staðan á Eið Aron og Óla Kalla?
„Þeir eru ekki að fara.''
Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan en þar talar Heimir nánar um leikinn sem og svarar spurningu út í orðróminn varðandi Tryggva Hrafn Haraldsson.
Athugasemdir