Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 27. júlí 2020 11:00
Magnús Már Einarsson
Lallana í læknisskoðun hjá Brighton
Mynd: Getty Images
Adam Lallana, miðjumaður Liverpool, er á leið í læknisskoðun hjá Brighton.

Hinn 32 ára gamli Lallana er á förum frá Liverpool en samningur hans hjá ensku meisturunum er að renna út.

Lallana hefur verið í viðræðum við nokkur félög en allt bendir til þess að hann endi hjá Brighton og snúi aftur á heimaslóðir á suðurströnd Englands.

Ef ekkert óvænt kemur upp á í læknisskoðun Lallana mun hann skrifa undir þriggja ára samning hjá Brighton.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner