Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 27. júlí 2020 12:30
Magnús Már Einarsson
Líklegt að Willian verði áfram hjá Chelsea
Mynd: Getty Images
Sky Sports segir frá því í dag að líklegt sé að Willian geri nýjan samning við Chelsea.

Hinn 31 árs gamli Willian er að verða samningslaus og hann hefur verið orðaður við Arsenal, Barcelona, Manchester United og Inter Miami.

Brasilíumaðurinn hefur neitað að skrifa undir nýjan tveggja ára samning hjá Chelsea þar sem hann vill fá þriggja ára samning.

Samkvæmt frétt Sky virðast samningaviðræðurnar við Chelsea hins vegar hafa tekið flug undanfarna daga.

Möguleiki er á að Willian gangi frá nýjum samningi við Chelsea í þessari viku.
Athugasemdir
banner
banner
banner