Afturelding mætti Leikni á Fagverksvellinum í Mosfellsbæ í kvöld og þurfti að sætta sig við 2-3 tap. Leikurinn var í 8.umferð deildarinnar og bauð upp á mikla skemmtun. Magnús Már þjálfari Aftureldingar var stoltur af sínum mönnum þrátt fyrir tapið.
„Svekkelsi. Stoltur af strákanum sem lögðu sig fram á síðustu sekúndu við það að jafna þennan leik. Við skoruðum annað markið kannski aðeins of seint. En ég held ef við hefðum fengið að spila aðeins lengur þá hefðum við jafnað leikinn" Sagði Magnús strax eftir leik.

Afturelding hefur stigið upp og spilað vel eftir erfiða byrjun og því er Magnús bjartsýnn á framhaldið. „Engin spurning. fyrstu þrír leikirnir töpuðust og það voru vonbrigði en menn hafa brugðist vel við" Sagði Magnús meðal annars.
Nánar er rætt við Magnús í viðtalinu hér fyrir ofan og hann spurður út í hópinn, félagsskipti Jason Daða og næstu verkefni. Við biðjumst velvirðingar á hljóðinu í myndbandinu.
Athugasemdir