Franska stórstjarnan Kylian Mbappe mun missa af leik Paris Saint-Germain gegn Atalanta í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar þann 8. ágúst næstkomandi.
Mbappe felldi tár er hann gekk af velli í úrslitaleik franska bikarsins í síðustu viku. Loic Perrin átti slæma tæklingu á Mbappe og snerist mjög illa upp á ökkla hans.
Hinn 21 árs gamli Mbappe missir af 8-liða úrslitunum en gæti verið klár fyrir undanúrslitin tæpri viku síðar, ef PSG kemst þangað.
Einvígin í 8-liða- og undanúrslitum Meistaradeildarinnar verða eins leiks einvígi svo hægt verði að klára keppnina. Átta liða úrslitin, undanúrslitin og úrslitaleikurinn munu fara fram í Lissabon í Portúgal.
Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar verður 23. ágúst.
Athugasemdir