Andreas Pereira, miðjumaður Manchester United, hefur skotið á James Milner og Virgil van Dijk leikmenn Liverpool.
Pereira var spurður að því á dögunum hver væri hrokafyllsti leikmaður sem hann hefur mætt.
„Ég kann ekki við þennan náunga Milner," sagði Pereira þegar hann svaraði spurningunni.
„Í hreinskilni sagt þá kann ég ekki við þennan varnarmann: Van Dijk. Hann er mjög hrokafullur."
„Ég virði hann og hann er góður leikmaður en ég hef rifist við hann inni á vellinum og hann er leiðinlegur."
Athugasemdir