Ensku úrvalsdeildinni lauk í gær eftir langt og strangt tímabil.
Mark tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni var valið í Match of the Day í gær þar sem upphaflega voru valin tíu mörk. Áhorfendur völdu svo þrjú bestu.
Þrjú bestu:
Kevin De Bruyne vs Newcastle United
Son Heung-Min vs Burnley
Anthony Martial vs Watford
Fyrrum sóknarmennirnir Ian Wright og Alan Shearer völdu svo besta markið. Þeir voru sammála um að Son ætti skilið verðlaunin fyrir mark hans gegn Burnley.
„Ég man þegar ég var hjá Barcelona með Bobby Robson og Ronaldo Nazario skoraði svipað mark og Son í dag. Og það var magnað mark," sagði Jose Mourinho, stjóri Tottenham, um markið hjá Son.
Þetta magnaða mark má sjá hér að neðan.
Son Heung-Min has won @BBCMOTD's Premier League Goal of the Season! Well deserved, Sonny. pic.twitter.com/g2WEbjimkX
— The Spurs Web ⚪️ (@thespursweb) July 26, 2020
Athugasemdir