Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 27. september 2019 14:42
Elvar Geir Magnússon
Bernardo Silva skrifaði bréf til enska sambandsins
Bernardo Silva.
Bernardo Silva.
Mynd: Getty Images
Tíst Bernardo Silva, þar sem hann líkir liðsfélaga sínum Benjamin Mendy við Conguitos súkkulaði fígúruna, hefur verið mikið í umræðunni síðustu daga.

Enska knattspyrnusambandið hefur verið að rannsaka færsluna og hvort hún flokkist sem kynþáttafordómar.

Bernardo og Mendy spila saman hjá Manchester City.

Bernardo hefur nú skrifað bréf til enska knattspyrnusambandsins þar sem hann segist sjá eftir færslunni en þar hafi þó engir kynþáttafordómar verið á ferð. Þá hefur Mendy einnig skrifað bréf og komið félaga sínum til varnar.

Hætta er á að Bernardo fái sex leikja bann ef enska knattspyrnusambandið dæmir hann sekan.

Pep Guardiola sagði á fréttamannafundi í dag að fólk sem væri að dæma Bernardo þekkti hann ekki.

„Hann er frábær persóna," sagði Guardiola.


Athugasemdir
banner
banner
banner