Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 27. september 2019 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Dani Alves: Vinicius hefur meðfædda hæfileika
Vinicius Junior í leik með Real Madrid
Vinicius Junior í leik með Real Madrid
Mynd: Getty Images
Brasilíski landsliðsmaðurinn Dani Alves er afar spenntur fyrir Vinicius Junior, leikmanni Real Madrid á Spáni.

Vinicius er að spila annað tímabil sitt fyrir Real Madrid en hann er aðeins 19 ára gamall.

Alves, sem er einn farsælasti leikmaðurinn í sögu Brasilíu, segir að Vinicius sé einn sá allra efnilegasti í heiminum.

„Ég verð að segja Vinicius Junior í Real Madrid. Það eru nokkrir leikmenn sem eru með meðfædda hæfileika og hann er klárlega einn af þeim."

„Ég hef fengið tækifæri til að fylgjast með honum spila með brasilíska landsliðinu og ég er mjög jákvæður. Við munum sjá mun meira af honum bráðlega,"
sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner