Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 27. september 2019 19:15
Ívan Guðjón Baldursson
Donny van de Beek að skrifa undir nýjan samning
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn eftirsótti Donny van de Beek er við það að fá launahækkun hjá Hollandsmeisturum Ajax samkvæmt fjölmiðlum þar í landi.


Hann mun skrifa undir nýjan samning sem gildir jafn lengi og sá núverandi, eða til sumarsins 2022. Launin munu þó vera talsvert hærri.

Van de Beek er lykilmaður hjá Ajax og var meðal annars eftirsóttur af Real Madrid í sumar. Zinedine Zidane hefur kvartað undan því að stjórn Real tókst ekki að krækja í miðjumanninn öfluga.

Van de Beek hefur ekki tekist að festa sig í sessi með hollenska landsliðinu en hann er aðeins 22 ára. Hann var lykilmaður í U19 og U17 landsliðum Hollands en hefur aðeins spilað sjö sinnum fyrir A-landsliðið á rúmlega tveimur árum.
Athugasemdir
banner