Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fös 27. september 2019 05:55
Brynjar Ingi Erluson
England um helgina - Lærisveinar Guardiola á Goodison Park
Mynd: Getty Images
Sjöunda umferð ensku úrvalsdeildarinnar fer fram um helgina en Liverpool mætir þar nýliðum Sheffield United í hádeginu á morgun.

Fyrsti leikur helgarinnar er á morgun klukkan 11:30 en þá fá nýliðar Sheffield United það verðuga verkefni að mæta Liverpool, sem hefur unnið alla leiki sína.

Sex leikir fara fram klukkan 14:00. Chelsea vann öflugan 7-1 sigur á Grimsby í deildabikarnum í vikunni og góðu fréttirnar fyrir liðið er að Callum Hudson-Odoi skoraði í endurkomu sinni en Chelsea spilar heima gegn Brighton.

Jóhann Berg Guðmundsson er þá í hópnum hjá Burnley sem mætir Aston Villa. Mauricio Pochettino og hans menn í Tottenham hafa byrjað illa en liðið tapaði fyrir Leicester í síðustu umferð og nú fær liðið Southampton í heimsókn.

Klukkan 16:30 verður Gylfi Þór Sigurðsson í eldlínunni með Everton sem mætir Englandsmeisturum Manchester City.

Leicester og Newcastle eigast við á sunnudaginn en umferðin klárast á mánudag er Manchester United og Arsenal mætast á Old Trafford.

Leikir helgarinnar:

Laugardagur:
11:30 Sheffield Utd - Liverpool
14:00 Crystal Palace - Norwich
14:00 Bournemouth - West Ham
14:00 Chelsea - Brighton
14:00 Aston Villa - Burnley
14:00 Tottenham - Southampton
14:00 Wolves - Watford
16:30 Everton - Man City

Sunnudagur:
15:30 Leicester - Newcastle

Mánudagur:
19:00 Man Utd - Arsenal
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 23 5 5 77 26 +51 74
2 Liverpool 33 22 8 3 75 32 +43 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 33 12 7 14 46 53 -7 43
12 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
13 Bournemouth 33 11 9 13 48 60 -12 42
14 Crystal Palace 33 9 9 15 42 56 -14 36
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 33 10 8 15 34 48 -14 30
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 33 3 7 23 31 88 -57 16
Athugasemdir
banner
banner
banner