Barcelona vill fá Fabian Ruiz frá Napoli næsta sumar. Þetta fullyrðir El Mundo Deportivo.
Eric Abidal, yfirmaður fótboltamála hjá Barcelona, fór til Ítalíu um síðustu helgi til að horfa á Fabian Ruiz spilar.
Eric Abidal, yfirmaður fótboltamála hjá Barcelona, fór til Ítalíu um síðustu helgi til að horfa á Fabian Ruiz spilar.
Barcelona er sagt hrífast af tímasetningu á hlaupum leikmannsins, hvernig hann kemur út á velli og góðar snertingar við boltann.
Óvissa er um framtíð miðjumanna Börsunga eins og Ivan Rakitic, Arturo Vidal og Sergio Busquets.
Fabian lék sinn fyrsta landsleik fyrir Spán í júní og heillaði á sínu fyrsta tímabili í ítölsku A-deildinni. Hann skoraði sjö mörk og átti þrjár stoðsendingar eftir að hafa verið keyptur frá Real Betis í fyrra.
Í sumar var sagt að Real Madrid hefði áhuga á þessum 23 ára leikmanni.
Athugasemdir