Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 27. september 2019 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Gomez: Ég verð að vera þolinmóður
Joe Gomez hefur fengið lítinn spiltíma
Joe Gomez hefur fengið lítinn spiltíma
Mynd: Getty Images
Joe Gomez, varnarmaður Liverpool á Englandi, bíður þolinmóður eftir tækifæri með liðinu en Joel Matip hefur haldið honum út úr liðinu.

Gomez og Virgil van Dijk mynduðu miðvarðarpar Liverpool í byrjun síðasta tímabils en í desember meiddist Gomez eftir tæklingu frá Ben Mee.

Matip tók stöðu hans og hefur verið magnaður síðan en hann hefur haldið Gomez út úr liðinu.

„Ég hef ekki verið að spila og auðvitað vilja allir fótboltamenn spila. Á sama tíma þá skil ég þetta af því við erum Evrópumeistarar og st´rakarnir eru að gera vel í augnablikinu þannig ég verð bara að vera þolinmóður, halda áfram að leggja mikið á mig og bíða eftir tækifærinu

„Það er ekki hægt að sitja hérna og vera leiður yfir þessu. Maður verður að vera jákvæður og nýta tækifærið þegar það gefst,"
sagði Gomez.
Athugasemdir
banner
banner
banner