Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 27. september 2019 00:00
Brynjar Ingi Erluson
HK og Víkingur R. slíta samstarfi - Víkingur tekur Inkasso-sætið
HK og Víkingur R. hafa ákveðið að slíta samstarfi
HK og Víkingur R. hafa ákveðið að slíta samstarfi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
HK og Víkingur R. hafa ákveðið að slíta átján ára samstarfi í kvennaflokki en Víkingur R. mun spila í Inkasso-deildinni að ári. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá HK/Víkingi í kvöld.

Samstarf HK og Víkings R. hófst árið 2001 en undir sameiginlegum merkjum lék liðið fjórum sinnum í efstu deild, vann fyrstu deildina tvisvar og leikið fimm sinnum í úrslitakeppni 1. deildar.

Ákvörðunin um að slíta samstarfi liggur í því að Fossvogurinn er ekki lengur sameiginlegt svæði liðanna en HK hefur fært aðsetur í Sala- og Kórahverfið á meðan Víkingu R. er að fara á gamla Fram-svæðið.

Víkingur R. mun taka sætið í Inkasso-deild kvenna á meðan HK mun leika í 2. deildinni á næsta ári. HK mun hins vegar taka sæti í A-deild í 2. flokki kvenna.

HK/Víkingur lék í Pepsi Max-deildinni í sumar en féll úr deildinni.

Yfirlýsing HK/Víkings:

Knattspyrnudeildir HK og Víkings hafa tekið sameiginlega ákvörðun um að slíta samstarfi um rekstur meistaraflokki, 2.flokki og 3.flokki kvenna.

HK og Víkingur hafa átt í áralöngu og farsælu samstarfi um rekstur kvennaflokka i knattspyrnu, en samstarfið um meistaraflokk nær aftur til árisins 2001. Liðið hefur fjórum sinnum spilað í efstu deild, tvisvar sinnum unnið 1. deildina og þess utan fimm sinnum tekið þátt í úrslitakeppni 1. deildar.
Það hefur aldrei borðið skugga á samstarfið og móðurfélögin hafa alla tíð staði þétt á bak við liðið.

Þau eru því þung sporin, nú þegar ákveðið hefur verið að þau gangi hvort sína leið. Fyrir því eru nokkrar ástæður, en sú augljósa staðreynd að Fossvogurinn er ekki lengur sameiginlegt svæði liðanna og flutningur HK í Salar- og Kórahverfi og tilkoma Víkings inn á gamla Fram-svæðið vegur þar þungt.

Nú tekur við uppbyggingarstarf hjá báðum félögum, en þau hafa tekið ákvörðun um að Vikingur haldi sæti HK/Víkings í 1. deild, en HK hefji sína vegferði í 2. deild, en haldi jafnframt sæti liðanna i A-deild 2. flokks. Það er einlæg von aðstandenda HK/Vikings að liðunum megi farnast vel og að þó vænta megi að hart verði tekist á i framtíðarleikjum félaganna þá verði þess ánægulega tíma sem þau hafa átt saman ávallt minnst af virðingu.

Athugasemdir
banner
banner